![]() |
Sunnudagsrúntur
Við kíktum í bústað til Rúnars, Jennu og Ágústs nágranna okkar með Hrefnu og Tomma fyrrverandi nágrönnunum síðasta sunnudag. Þetta var hið mesta stuð, við vorum varla mætt á svæðið og farin að skoða bústaðinn og öll trén sem þau eru búin að gróðursetja þegar Jenna var búin að töfra fram kaffi og kökur sem hurfu á nó tæm. Fallegar áfengisflöskur virtust spretta upp í hverju horni (þarf endilega að fá mér svona bústað) og það var aðeins heilsað uppá þær. Þar sem þau reka hestaleigu og eru með um 40 hross þá skelltum við okkur á hestbak. Sjálf hef ég ekki farið á hestbak síðan sumarið ´97 þegar við Lára vinkona heimsóttum frænku hennar á Flúðum og þar var mér skellt á ótemju sem henti mér af baki á góðu stökki og ég lá hálfrotuð eftir, síðan þá hef ég verið jafn skrítin og ég er í dag! En við stóðum okkur öll sem sannar hetjur, ég var nú pínu aum í æðri endanum daginn eftir, Bjartur hefur aldrei átt annan eins dag og uppgötvaði ansi marga vöðva sem hafa ekki verið virkir frá fæðingu, Tommi átti nú gullkorn dagsins um líkamshluta sem verður ekki farið nánar út í hér en honum verður mjög sennilega skellt í haldara í næstu ferð til að koma í veg fyrir frekari meiðsl (",) Eftir rúntinn var grillað, spjallað og drukkið oggulítið meira. Hrefna tók að sér að keyra í bæinn og er nú forfallinn jeppagella og gott ef ekki Land Rover gella líka! Deginum var svo slúttað með því að skúra eitt stykki hárgreiðslustofu með þeim hjúum, það var því ansi hreint þreyttur mánudagur í þessari viku. Hrefna tók að sér myndatöku af hestafólkinu sem eru komnar á netið og þær má sjá hér posted by Sibba at 6:24 e.h. |
Bloggleysi
Já það er alltaf sjaldnar og sjaldnar sem maður nennir að blogga þessa dagana enda nóg annað að gera í góða veðrinu en að sitja við skriftir á labbann. Það hefur stórskemmtilegt línuskautaæði gripið heimilið (þó aðallega húsmóðurina) og erum við á ferðinni ansi hreint oft í viku á skautunum. Okkar skautar eru nú óttaleg skrapatól og til lítils brúks en við fengum lánaða pro skauta hjá Laufeyju og Gulla og þá fóru nú hlutirnir að gerast. Ég er orðin svo ansi hreint þorin að ég er hætt að láta smá brekkur hræða mig og skauta niður þetta allt saman (nánast!). Svo er ég farin að kenna gömlum kellum og köllum á Seltjarnarnesi vatnsleikfimi 2x í viku og þar sem það virðist alltaf vera gott veður á Nesinu þessa daga þá er svo óskup tilvalið að bregða sér á skautana eftir kennslu. Svo erum við að ræða það þessa dagana að kaupa okkur almennilega skauta svo við séum nú ekki að útjaska skautunum hjá Lubbu og Gulla, alveg tilvalið að láta kennslulaunin fara í svona vitleysu. Þess má svo geta að við Gústulín misstum ekki sjálfboðaliðastarfið okkar hjá FH gellunum því þær unnu sinn fyrsta sigur í deildinni um daginn. Fagnaðarlætin voru slík að fögnuður evrópumeistara Grikkja hefði ekki geta slegið látunum við. Við tókum virkan þátt í leiknum og skokkuðum 2x inná völlinn í þeirri von að gera kraftaverk sem við að sjálfsögðu gerðum með glans (",) posted by Sibba at 12:10 e.h. |
|