...vinir...
Aldís
Birna
Gímald, Latzi og Jenni
Guðný
Jóna
Kristín
Lubba og Gulli
Svöluspjall
Þóra KR.

...tíkin...
úlfamyndir

...ljósmyndun... Áhugaljósmyndarar
Ljósmyndarinn

...matargatið...
Eldhúsið
Matarlist
Himnesk hollusta

...38"...
Trukkurinn

...myndir...
London I
London II
Nokkrar myndir
Fleiri myndir

...sitt af hverju...
Mogginn
Jákvæðni
Bærinn
Sjúkraþjálfun
Skólastrákur

...gamalt bull...
05/01/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 07/01/2003
07/01/2003 - 08/01/2003
08/01/2003 - 09/01/2003
09/01/2003 - 10/01/2003
10/01/2003 - 11/01/2003
11/01/2003 - 12/01/2003
12/01/2003 - 01/01/2004
01/01/2004 - 02/01/2004
02/01/2004 - 03/01/2004
03/01/2004 - 04/01/2004
04/01/2004 - 05/01/2004
05/01/2004 - 06/01/2004
06/01/2004 - 07/01/2004
07/01/2004 - 08/01/2004
08/01/2004 - 09/01/2004
09/01/2004 - 10/01/2004
10/01/2004 - 11/01/2004
11/01/2004 - 12/01/2004
12/01/2004 - 01/01/2005
01/01/2005 - 02/01/2005
02/01/2005 - 03/01/2005
03/01/2005 - 04/01/2005
04/01/2005 - 05/01/2005
05/01/2005 - 06/01/2005
06/01/2005 - 07/01/2005
07/01/2005 - 08/01/2005
08/01/2005 - 09/01/2005
09/01/2005 - 10/01/2005
10/01/2005 - 11/01/2005
11/01/2005 - 12/01/2005
01/01/2006 - 02/01/2006
02/01/2006 - 03/01/2006
03/01/2006 - 04/01/2006
05/01/2006 - 06/01/2006
08/01/2006 - 09/01/2006
09/01/2006 - 10/01/2006
10/01/2006 - 11/01/2006
11/01/2006 - 12/01/2006
12/01/2006 - 01/01/2007
03/01/2007 - 04/01/2007
09/01/2007 - 10/01/2007

Credits
Blogger
Blogskins


miðvikudagur, október 25, 2006

...ýsuflök á ensku!!
Hef ekki lent í því áður að þurfa að tala ensku í Hagkaup til að einhvur skilji mig, sök sér að einhver afgreiði á kassa sem ekki talar íslensku en ég er ekki alveg að höndla það að kaupa nætursaltaða ýsu í fisk/kjötborði og afgreiðslustelpan skilur ekki stakt orð í íslensku!! Minnti mig á þegar við Bjartur vorum á Subway í London og hann gat ekki munað hvernig átti að segja græn paprika á ensku og reddaði sér með "grín paprikka" (Sé enn í anda strákinn sem afgreiddi okkur hvað hann vorkenndi Bjart að eiga svona ömurlega kærustu sem emjaði af hlátri - endaði með því að við fengum subwayinn frían en það er ögn lengri saga og tengist lítið papriku vandræðum).
Annars sé ég fyrir mér að pelsklæddu heldri húsmæðurnar hér í Garðabænum verði ekki par hrifnar af því að þurfa að kaupa í soðið á ensku - skiljanlega svo sem.


posted by Sibba at 5:15 e.h. |

~|=|~


þriðjudagur, október 24, 2006

...mánuður síðan síðast...

skemmtilegt að hafa svona flottar dagssetningar tvisvar í röð! Skellti einni skemmtilegri mynd af Bjart og Papey með póstinum, þau voru að fara með einhvur gamanmál sem ég fékk ekki að heyra af.
Helstu fréttir eru þær að við höfum ekki enn farið og heimsótt nýju nágranna okkar í IKEA við IKEA-braut. Bjartur suðar og suðar í mér að koma með sér svo ég læt nú sennilegast undan hvað úr hverju.
Annars dreymdi mig ansi skemmtilegan draum í nótt þar sem aðalhetjan var sjálfur Tom Cruise, man að við Bjartur vorum að spjalla við kappann þegar ég spyr drenginn af hverju hann komi ekki í heimsókn til Íslands? Og með það vaknaði ég og ákvað að þetta hlyti að verða ansi góður dagur fyrst hann byrjaði svona ágætlega - enda var þetta hinn ágætasti dagur fyrir utan mislukkaðan kjúkling í kvöldmat sem var eitthvað dularfullur og skrítinn (aldrei að treysta bleika svíninu).
Bjartur situr yfir lærdómnum alla daga og öll kvöld, reiknar ansi skemmtileg dæmi sem ég skil ekki baun í og er stolt af. Þegar ég var í skóla snérist stærðfræði um tölur en nú snýst hún um bókstafi - get fundið nánst allt stafrófið í einu dæmi.

Tveir mánuðir til jóla -


posted by Sibba at 8:40 e.h. |

~|=|~