![]() |
.......London babe.......
Vid erum ad skemmta okkur rosalega vel i London. Eg er i lobbyinu a hotelinu okkar sem er bara ansi litid og kosy. Vid erum buin ad gera alveg fullt fullt, buin ad labba og labba og labba og labba og svo versla lika svoldid. Bara gaman. Forum a Oxfordstreet og thar i kring i dag og i gaer og versludum og skodudum okkur um. Thad er buid ad vera mjog svo heitt a okkur, buid ad vera 30 gradu hiti i dag og um 20 hina dagana. I fyrradag forum vid ad Buchingham, Big Ben, Thinghusid, Kensington Palace, forum ad Thaims River og horfdum a London Eye. Erum ad spa hvort vid eigum ekki ad sleppa ad fara i London Eye thvi thad er svo ansi dyrt og fara i siglingu um Thaims frekar. Vid eigum enn eftir ad fara i London Zoo, vaxmyndasafnid og London Aquarium. Verd nu ad minnast a ad vid forum i Hamleys i dag (leikfangabud a 5 haedum), jiminn hvad var gaman - keypti samt engan bangsa :( Bjarturinn liggur i simaskranni ad reyna ad finna girnilega motorhjolabud. Vid aetlum svo ad eyda kvoldinu i ad rolta um Hyde Park og leika okkur med hinum London buunum i hitanum. En nu er eg haett ad skrifa, er ekki svo lunkin i ad hafa ekki islenskt lyklabord!! posted by Sibba at 4:43 e.h. |
.......bara búúúúiiið......
Ótrúlegt en satt! Skilaði 70 bls BS verkefninu í dag - mikil fegurð í þessum pappír sko. Við Dóran kynntum líka BS verkefnið á miðvikudaginn síðasta og það gekk bara ótrúlega vel og við bara ansi sáttar við framistöðuna. Svo eru flestir bekkjarfélagarnir að fara til lands fuglaflensu og fljóðbylgna í nótt, heilmikil stemning í gangi og allir spenntir. Ég hlakka til að sjá myndir frá ferðalaginu þeirra. Svo styttist nú ansi vel í London ferðina okkar og við farin að hlakka mikið til. En þangað til ætla ég að njóta þess að þurfa ekki að gera neitt nema mig langi til - enginn skóli í fyrsta skipti í 20 ár!! Skrýtið að vera búinn að skila lyklinum að skólanum og inniskórnir komnir heim - þarf líka bráðum að gleyma lykilorðinu að HÍ vefnum. posted by Sibba at 7:20 e.h. |
The final count down.......
15 dagar í BS kynningu 21 dagur í London 28 dagar í að húsmóðirin verði tuttuguogsexý 37 dagar í að sama húsmóðir hundskist út á vinnumarkaðinn eins og venjulegt fólk posted by Sibba at 5:00 e.h. |
|