laugardagur, mars 18, 2006
Stuð og stemning í Blómaval!!
jebb við vorum með hundinn í Husky básnum á hundadögunum í Blómaval í dag, vorum þar í heila 2 tíma og var bara nokkuð gaman. Mér leið eins og algjörum bjána að rölta með hundinn í Blómaval þegar við vorum að koma og fara - sá fyrir mér fíl í Tékk kristal (",) sem hefði nú bara verið gaman. Þetta var bara mun skemmtilegra en ég átti von á því ég hafði engan áhuga á að vera þarna. En Papey skemmti sér konunglega og fékk athyglisskammt næsta mánaðar! Henni leiðist ekki að láta klappa sér og að krakkarnir séu að hnoðast í henni og kjassa enda algjört letidýr og kelirófa. Annars sá ég einn alveg geðveikt flottan hund af tegund sem ég hef aldrei séð áður og það er Franskur Mastiff alveg geggjaður boli, hann lá úti í horni og svaf og hafði ekki fyrir því að lyfta upp öðru augnlokinu þegar ég var að klappa fellingunum, bara flottur!!
Gleymdi alveg að minnast á undurfallegu lopapeysuna sem daman klæðist á myndunum tveimur, prjónaði hana alveg sjálf og er bara nokkuð stolt af henni og hana nú (",)
posted by Sibba at 6:25 e.h.
|
~|=|~
Skvízurnar í Blómaval
posted by Sibba at 6:23 e.h.
|
~|=|~
|